Flutt :D
Hæhæ, bara að láta vita af mér.
Erum búin að vera á fullu í unglingavinnunni og að flytja síðustu þrjá daga svo hef ekkert nennt að blogga, enda var bara að klára að tengja netið:D
Allavega fyrir þá sem ekki vita þá ætlum við að búa hjá ömmu þangað til við fáum nýja húsið :D
Í dag er ég búin að reyna að venja Doppu sem er mín kisa við Nicolu sem ömmu kisa. Doppa er búin að kvæsa,urra,hrína,gelta og ég veit ekki hvað á Nicolu, bara að láta vita að hún ráði :S, Sem hún gerir ekki :D
Nicola má ekki koma nálægt henni þá koma alskonar hljóð :D
Svo er búið að vera svo geggjað gott veður að maður reynir að vera eins mikið úti og maður getur :D Er meira að segja orðin pínku brún :D
KV
-Ásaa



Laangt blogg...
Halló palló, ég ætla að segja aðeins frá ferðinni til CostaDelSol.
Allavega þá flugum ég og Brynja systir mín til CostaDelSol og þar á flugvöllinn komu pabbi minn og fóstumamma að sækja okkur, en þau hefðu farið viku áður. Við vorum á hóteli sem heitir Apartamentos Bajandillo sem er í Bæ sem heitir Torremolinos.Þetta var geggjað skemmtileg ferð og gerðum við alveg helling á einni viku ;)
Ég skrifaði alltaf á kvöldin hvað við hefðum gert yfir daginn svo ég set það bara allt inn ;)
Já og svo koma myndir úr ferðinni um helgina.
Miðvikudagur, 6.júní.
Lenntum klukkan eitt í Malaga. Við Brynja vorum búnar að spjalla við einhverja geggjað hressa konu eiginlega alla leiðina.
Flugið gekk allavegana bara vel og allt samkvæmt áætlun.
Pabbi og Ágústa komu að sækja okku á flugvöllinn og við fórum beint uppá hótel og skiptum um föt.
Við fórum svo bara á röltið og fengum okkur pizzu á einhverum hollenskum stað. Við vorum svo eiginlega bara á röltinu og að skoða okkur um þangað til um kvöldmatarleytið. Þá fórum við á geggjaðann ítalskann stað að borða. Svo fórum við bara uppá hótel og bjuggum um okkur.
Fimmtudagur, 7.júní.
Við vöknuðum klukkan tíu, borðuðum og klæddum okku og fórum svo á ströndina í sólbað. Seinna um daginn keyptum við Brynja vindsæng og ég,Brynja og Ágústa fórum í sjóinn. Þegar við vorum svo að koma uppúr var Brynja dálitið á undan okku Ágústu og þá kom Huges alda og skolaði henni uppá land og hún skrapaðist öll greyið. Ég og Ágústa vorum aðeins heppnari of fengum bara hálft tonn af sjó ofaní lungu og sand í eyrun...
Jamm svo var bara haldið uppá hótel og allir í hrein föt og sturtu og svo var farið á röltið og að borða:D.
Föstudagur, 8.júní.
Við vöknuðum,borðuðum og tókum strætó niðrí Málaga og skoðuðum í búðir og fórum svo í tveggja hæða strætó og fórum uppí hæðir og sáum GEGGJUÐ útsýni. Við borðuðum svo kvöldmat í Málaga og fórum heim einhverntíman um kvöldið.
Laugardagur, 9.júní.
Við vöknuðum,borðum og fórum beint á ströndina. Vorum eiginlega á ströndinni allann daginn. Um kvöldið fórum við í búðir og borðuðum, og skoðuðum allskonar drasl og fórum svo á kaffihús og horfðum á einhvern einhverfann indjána dansa. Fórum svo uppá hótel klukkan svona hálf ellefu.
Sunnudagur, 10.júní.
Við leygðum bílaleigubíl of keyrðum til Gíbraltar sem er í eigu Breta. Þar fórum við í svona private-tour og geggjað hress maður sem heitir John keyrði okkur efst uppá fjallið í Gíbraltar sem er alveg 420 metra hátt. Á leiðinni upp stoppuðum við í tveimur hellum sem voru rosalega flottir:D Þegar við komum loksins uppá topp, sýndi leiðsögumaðurinn okkur fullt af litlum og stórum öpum og við fengum svo að halda á litlu öpunum sem voru bara 7-8mánaða gamlir, bara dúllur:D
Við keyrðum svo niður fjallið og fórum í okkar bíl. Við keyrðum svo aðeins um í Gíbraltar en keyrðum svo til Marabella (sem er bærinn sem Antonio Banderaz býr í) og ætlðum að finna einhvern stað til að borða á en það vor svo ekki að gera sig þar sem það var að byrja nautaat og það var fólk útum allar götur að bíða eftir atinu þannig að við keyðrum bara til Fuengerolla sem er bær rétt hjá Marabella, en þar borðuðum við mjög góðann mat. Svo var bara haldið heim og kúrt uppí sófa að horfa á “How to loose a guy in ten days” sem var búið að talsetja á spænsku, I know spennandi :S
Mánudagur, 11.júní.
Á mánudeginum vorum við eiginlega á ströndinni allan daginn. Fórum svo um kvöldið og löbbuðum göngu-götuna og versluðum. Um kvöldið borðuðum við á ótrúlega góðum kínastað.
Þriðjudagur, 12.júní.
Vöknuðum snemma og fórum á mjög stórann markað í Fuengerolla, keyptum eitthvað smátterí.
Svo fórum við bara með leigubíl heim og í sundfötin og í sundlaugina í garðinum. Seinna um daginn tókum við leygubíl til Benalmadena sem er bær rétt á milli Torremolinos og Fuengerolla. Þar fórum við allavega á smábátahöfnina, í búðir og gáfum fiskum brauð sem voru í höfninni(baras snillld) og borðuðum svo ótrúlega góðann mat á ítölskum stað. Svo fórum við bara heim að pakka.
Miðvikudagur, 13.júní.
Vöknuðum snemma til að ganga frá íbúðinni. Klæddum okkur svo í sundföt og fórum í sundlaugina í garðinum. Klukkan tvö lögðum við að stað uppá flugvöll en fórum í loftið klukkan fjögur. Við Brynja vorum svo komnar heim klukkan níu en þá voru Amma og Addi í mat. Ég var nú bara hálf feginn að fá loksins mitt eigið rúm, svaf sem sagt vel um nóttina :D
Mér fannst ferðin æðisleg en það sem mér fannst skemmtilegast var að fara til Gíbraltar.Jahá þetta varð aðeins lengra en ég hélt að þetta yrði svo bless í bili....
-Ásaa
Við fórum allavega þarna alveg uppá topp.
Sólarblogg
Hallópalló, bara ad láta vita ad ég er á lífi. Tad er allavega bara búid ad vera gedveikt gaman hérna.Í dag fórum vid til Gíbraltar og tad var bara geggjad. fórum lengst uppí fjall og skodudum fullt af opun,vid fengum ad halda á teim og allt...
Búin ad taka fullt af myndum svo ad ég set taer inn tegar ég kem...
Adios í bili,
Ásaa....
CostaDelSol í fyrramáliđ
Hæj, ætla nú ekki að blogga neitt bara að segja að ég er að fara til CostaDelSol og er að deyja úr spenningi.
Við Brynja förum bara tvær og hittum pabba og Ágústu á flugvellinum í Malaga :D Ohh mig hlakkar svo til að komast úr þessu ógeðslega veðri í Grafarholti og í sólina:D
Svo kem ég heim miðvikudaginn eftir viku, vel frekknótt og rauð. Og ég ætla rétt að vona að það verði gott veður þegar ég kem heim :D
Allavega þangað til næst, bæj..
-ÁsaOUT...:D



Prófavika :S
Ég ætla nú að reyna að halda þessari síðu lifandi, en þar sem ég hef verið í prófum hef ég bara ekki komist í né nennt að blogga, ætla þá að skella einu stuttu inn.
Allavega á mánudaginn var íslenskupróf sem gekk bara mjög vel,Þriðjudaginn var stærðfræðipróf sem gekk nú bara svona lala. Í dag var samfélagsfræði og það gekk svona frekar illa en held ég hafi náð 20% rétt
Á morgun er svo frí og á föstudaginn er dönskupróf sem ég ætla svo að svoleiðis rústa. Ég er nefnilega svo sleip í dönskunni (NOT).
En maður verður bara að gera gott úr þessu öllu og taka þessu rólega.
Núna eru allavega bara 14 dagar í CostaDelSol sem verður bara gaman, kem heim skíthvít eins og venjulega og vel freknótt, ég bara skil ekki af hverju ég er ekki rauðhærð.
Á morgun ætlum við Lilja í Kringluna og kíkja í einhverjar búðir og svona..
Þangað til næst, sem ég veit ekki hvenær verður, ekkeert stress verið hress, bless :D
-Ásaa
P.S. allir að adda www.myspace.com/doppaa



Blogg:D
Ég nenni aldrei að blogga en ég bloggaði áðan á www.kawasaki-crew.central.is svo ég copy-aði það bara hingað, bara til að halda síðunni lifandi :D
Hæhæ, mér hálfleiðist hérna svo að ég ætla að setja inn eitt blogg...
Umm í gær þá fór ég bara í skólann, var búinn frekar snemma og fór svo með mömmu í kringluna og smáralindina að kaupa afmælisgjöf fyrir Orra sæta sem átti afmæli í gær :* Til hamingju með það æðibitinn minn ![]()
Jamm svo keyptum við einhverja boli og eitthvað á mig. Við komum svo við í fiskó ég keypti ógeðslega ljóta ryksugu(fiskur) Hann heitir Robbie Williams og er með ljótari fyrirbærum sem ég hef bara á ævi minni séð
Greyið Robbie ![]()
Já allavega svo fórum við í afmælið til Orra og ég fór með krakkana út á róló og ég er með harðsperrur núna eftir allt hlaupið eftir krökkunum.
Mamma skutlaði okkur svo bara til pabba..
Í morgun fórum við í einhverjar bílabúðir að finna eitthvað stykki fyrir fellihýsið hans pabba og fórum svo í Smárlindina. Pabbi keypti geðveikt flottar Levi's buxur fyrir mig. Við komum svo við í bakaríinu og fórum til ömmu og afa í kaffi...
Svo á leiðinni heim fórum við á einhverja fornbílasýnigu þar sem ég sá GEÐVEIKANN bleikann bíl. Vildi að ég hefði verið með myndavél ![]()
![]()
![]()
Jáhá svo erum við bara hérna heima, ég og Brynja erum að bíða eftir pabba sem er að sækja Ágústu...
Anyways, nóg í bili.
-Ása:*
Blogg ;)
Dagurinn í dag er bara búinn að vera fínn.
Ég fór í smáralindina með Lilju um klukkan eitt of horfðum á Kareni dansa á íslandsmeistaramóti í einhveerjum samkvæmisdansi, kíktum í búðir og fórum svo í bíó á Mr.Bean.
Hún var svosem fín, komu samt kaflar sem maður gat bara ekki horft á, bara ooof heimskulegt :')
Jamm svo löbbuðum við yfir til ömmu og afa sem búa bara þarna á móti smáralindinni og fengum okkur að borða, pabbi, Brynja og Ágústa komu svo þangað og keyrðu okkur svo bara heim eftir smá stopp hjá ömmu og afa
Svo komum við heim og pöntuðum pizzu og ég er núna bara í tölvunni.
Komið gott í bili, ætla að fara að þrífa fiskabúrið áður en að fiskhelvítið drepst úr skít. Haha góð hugmynd ;) Djók :D Væri fyndið samt :S
Ásaa.



Blogg;)
hæhæ...
Í gær eftir skóla kom pabbi og sótti okkur Brynju, við fór svo bara eitthvað í Hagkaup og keyptum í Tortilla kökur ;D
Fórum heim elduðum,borðuðum,horfðum á tv-ið og e-ð.
Í dag eru við bara búin að taka því rólega, horfa á tv-ið og tölvunni og eitthvað.
Við Brynja bjuggum til geðveika pizzu áðan, hún var bara snilld.
Svo leygðum við einhverja mynd á vod-inu og borðuðum uppí sófa.
Hörður og Sigrún komu nefnilega og það var einhver voða matur hjá þeim sem okkur hreint út sagt langaði ekkert svakalega í..![]()
Á morgun ætlum við Lilja kanski í bíó eða eitthvað svo förum við örugglega til ömmu og afa, ég er ekki búin að hitta þau í mánuð eða meira.
Nóg í bili,
gleðilegt sumar allir ;D
Ásaa



Blogg :D
Þar sem ég er ekkert búin að vera dugleg að blogga undanfarið ætla ég að taka eitt blogg og skella svo kanski inn eitthvað af London myndunum
Í gær fór ég bara í skólann, geggjað þreytt og mygluð eftir æðislega páskafríið
Eftir skóla fór ég beint til Lilju og við pössuðum Þórey og Lukku, ohh þær eru svo miklar dúllur. Lukka spurði hvort ég vildi vera systir sín, ég audda bara jájá ekkert mál
Svo tóku þær mig í make-up, Lukka gerði í hárið á mér og Þórey Gréta málaði mig og ég var alveg eins og prinsessa. Með varalit útum allt andlit og með augnskugga í stað kinnalits og alveg geðveika hárgreiðslu miðað við 4 og 6 ára stelpur
Já og Lilja tók myndir af mér fyrir og eftir svo ég verð að setja það einhverntíman inn líka.
Svo pöntuðum við Lilja pizzu og þegar við löbbuðum út úr húsinu hennar kom Þórey og setti límmiða á kinnina á mér og sagði að ég hafði verið mjög góð í tímanum í dag.. Aftur DÚLLA
Svo fórum við Lilja og náðum í Pizzuna og fórum heim til mín og borðuðum þar.
Við horfðum svo á John Tucker Must Die sem ég keypti úti og borðuðum uppí rúmi, mjög kósý bara.
Maður verður nú að gera eitthvað til að syrgja að páskafríið sé búið
Í dag fór ég líka í skólann með þá uppgvötum að ég eða Elín höfðum óvart hent armbandinu mínu og hringnum deginum áður í listgreinum þegar við vorum að mála.
Svo strax eftir skóla fór ég í listgreinastofuna og KAFAÐI í ruslinu þangað til ég fann það
Við Lilja fórum svo bara heim til mín pöntuðum pizzu eina ferðina enn
Fórum svo og náðum í hana og svo aftur heim til mín og borðuðum og horfðum á American Pie,Beverly Hills og Melrose Place. I know lonley, right
Svo dáwnlódaði Lilja einhverju incredimail-screensaver dóti fyrir mig og það er bara geðveikt.
Lilja er svo eiginlega nýfarin heim að borða en hún er svo að fara á æfingu og eitthvað.
Mér finnst þetta nú bara hafa verið ágætt blogg, meira að segja með þeim lengstu sem ég hef á æfinni skrifað.
Kveðja
ÁsaaRuslakarl



London:D
Tad er buid ad vera gedveikt gaman hja okkur herna.
Forum i gaer a Natural History museum sem var bara sniiiillld. Fult af beinagrindum af risaedlum,uppstoppudum dyrum og fl. Eg var audvitad dugleg a myndavelinni svo tid faid myndir tegar eg kem heim :D
Svo forum vid i Hamleys i dag og keyptum alveg slatta.
Vid vorum nuna bara ad koma af Pizza Hut og erum svo bara ad fara uppa herbergi tar sem tad er buid ad loka ollum budum.
A morgun aetlum vid bara ad fara i budir og a sunnudaginn forum vid i London Zoo sem verdur bara geggjad.
Ta er tetta bara komid,
kvedja fra okkur herna.
Asaa.


